Vilhelm Neto lýsir íslenska veðrinu fullkomlega í þessu hlægilega myndbandi

Samfélagsmiðlastjarnan Vilhelm Neto setti myndband á Twitter aðgang sinn í gær sem lýsir íslenska veðrinu fullkomlega. Veðrið hefur sett mark sitt á sumarið, sérstaklega á suðvesturhorni landsins, þar sem rignt hefur nánast upp á hvern einasta dag. Í gær var þó stund á milli stríða þegar sólin skein nánast á alla landsmenn.

Sjá einnig: Sólin skín á landsmenn í dag

Vilhelm lýsir veðrinu fullkomlega því í dag er grenjandi rigning, að minnsta kosti á vestanverðu landinu og ekki útlit fyrir sólardag aftur í bráð.

Auglýsing

læk

Instagram