VMA ósátt við breytingar á Söngkeppni framhaldsskólanna og dregur sig úr keppni

Uppfært kl. 22.25: Samkvæmt nýjum upplýsingum frá Sambandi íslenskra framhaldsskólanema hefur Elísa, sigurvegarinn á Akureyri, áhuga á að taka þátt keppninni í Reykjavík og mun taka þátt í æfingarhelginni í Reykjavík, með hjálp frá styrktarsjóði SÍF.

Þórduna, nemendafélag Verkmenntaskólans á Akureyri, hefur dregið sig úr Söngkeppni framhaldsskólanna, sem fer fram í Reykjavík í apríl. Í yfirlýsingu á vef nemendafélagsins kemur fram að nemendafélagið sé ósátt við breytingar á keppninni.

Elísa Erlendsdóttir sigraði söngkeppni VMA fór fram á fimmtudaginn í síðustu viku. Hún flutti lag Amy Winehouse, You Know I’m No Good. Á vef Þórdunu kemur fram að Elísa taki ekki þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna en komi þess í stað fram á jólatónleikum Friðriks Ómars í Hofi í desember. „Sem er engu að síður stór stökkpallur,“ segir á vefnum.

Stærsta breytingin á keppninni í ár er sú að 12 skólar verða valdir af dómnefnd til þátttöku í aðalkeppninni, sem verður í beinni útsendingu á RÚV. Skólar sem senda inn atriði greiða þátttökugjöld óháð því hvort þeir komist í keppnina eða ekki. Stjórn Þórdunu er ósátt við þessar breytingar.

„Þær breytingar sem við erum einnig ósátt með, sem gerðar hafa verið á keppninni síðustu ár, eru meðal annars það að keppendur allra skóla á landinu hafa ekki tækifæri til að keppa í aðalkeppninni og fá tækifæri í sjónvarpi vegna þess að skólar eru sigtaðir út annað hvort með undankeppni eða dómnefnd,“ segir í yfirlýsingu Þórdunu.

Hefur þetta gert það að verkum að umgjörð og áhugi á keppninni hefur stórminnkað síðustu ár og sjáum við ekki hag okkar í því að taka þátt.

Stjórn Þórdunu segir brotið á keppendum með því að bjóða 12 af 30 skólum að stíga á svið og flytja lag sitt í sjónvarpinu. „Með þessu finnst okkur að ekki sé verið að fylgja eftir hagsmunum keppenda og nemenda í framhaldsskólum á Íslandi.“

Steinunn Ólína Hafliðadóttir, formaður Sambands íslenskra framhaldsskólanema (SÍF), segir í samtali við Nútímann að komið hafi verið á fót styrktarnefnd til að hjálpa skólum að safna fyrir þátttöku í keppninni. Allir skólar fái að taka þátt í sérstakri æfingarhelgi þar sem dómarar verða á svæðinu og verður frammistaða þar á meðal þess sem tekið verður til greina þegar atriði verða valin í aðalkeppnina.

Í yfirlýsingu á vef SÍF kemur fram að Söngkeppnin hafi undanfarin ár verið rekin með miklu tapi.

„Söngkeppnin hefur síðastliðin ár verið unnin í samstarfi á milli SagaFilm og SÍF. Í upphafi á skipulagningu söngkeppninnar 2016 var framkvæmdarstjórn SÍF tjáð að SagaFilm gæti ekki staðið undir kostnaði keppninnar ef hún kæmi ár eftir ár í milljóna mínus. Breytt fyrirkomulag keppninnar er því vegna óskar okkar um að halda keppninni lifandi,“ segir í yfirlýsingunni.

Þar segir að breytingar á þátttökugjaldi séu gerðar til að passa að þessi stökkpallur fyrir unga og efnilega söngvara glatist ekki. Allir  skólarnir 30 greiða 40 þúsund króna þátttökugjald sem gefur þeim aðgang að æfingarhelgi SÍF. Þar fá þátttakendur framkomunamskeið frá Glowie, hljómsveitaræfingu, hárgreiðslu og förðun, myndatöku og innslög.

„Við skiljum vel að nemendafélög Framhaldsskólanna eru misvel stæð og hefur framkvæmdarstjórn SÍF því í fyrsta sinn skipað fjáröflunarteymi til að koma til móts við kostnað nemendafélaga við söngkeppnina,“ segir í yfirlýsingunni.

„Okkar markmið er að gera snið keppninnar sjálfbært og straumlínulagað svo að Söngkeppnin geti verið haldin ár eftir ár. Keppnin er, eins og segir, stökkpallur fyrir unga og efnilega söngvara sem eru í þínu nemendafélagi. Við myndum harma það ef að tækifæri líkt og þetta, glatist.“

Auglýsing

læk

Instagram