WOW air fjarlægir auglýsingu með Hafþóri Júlíusi af vegg í World Class í Laugum

Flugfélagið WOW air hefur látið fjarlægja stóra auglýsingu sem hékk á vegg í World Class í Laugum en hún sýndi Hafþór Júlíus Björnsson halda á tveimur flugfreyjum. Ábending barst fyrirtækinu á Twitter í gær þar sem það var hvatt til að bregðast við og ekki var liðinn sólarhringur þegar auglýsingin hafði verið fjarlægð. Frá þessu er greint á Vísi.

Nokkuð hefur verið fjallað fjallað um Hafþór Júlíus í Fréttablaðinu og á Vísi að undanförnu. Í forsíðuviðtali Fréttablaðsins um helgina ræðir blaðamaðurinn Snærós Sindradóttir við barnsmóður Hafþórs sem lýsti upplifun sinni af framkomu Hafþórs í sinn garð. Í kjölfarið sendi Hafþór frá sér yfirlýsingu.

Hér má sjá ábendinguna sem WOW air barst

Innan við sólarhring síðar hafði auglýsingin verið fjarlægð og Guðni fékk svar

 

Auglýsing

læk

Instagram