Zlatan skorar Beckham á hólm: „Ef Svíþjóð vinnur kaupir þú hvað sem ég vil úr Ikea“

Knattspyrnuguðinn Zlatan Ibrahimovic skoraði knattspyrnugoðsögnina David Beckham á hólm á samfélagsmiðlum í gær. Ástæðan er leikur Englands og Svíþjóðar í 8-liða úrslitum á HM sem fer fram í dag, en kapparnir áttu báðir langa landsliðsferla með liðunum ásamt því að hafa verið liðsfélagar hjá AC Milan og Paris Saint-Germain.

Zlatan, sem er á mála hjá L.A. Galaxy í Bandaríkjunum, setti mynd af þeim félögum á Instagram og nýtti tækifærið til að skora Beckham á hólm.

„Yo David Beckham ef England vinnur á morgun skal ég bjóða þér út að borða hvar sem þú villt í heiminum, en ef Svíþjóð vinnur þá kaupir þú hvað sem ég vil úr Ikea, samþykkt?“

Beckham var ekki lengi að svara veðmálinu í athugasemd við myndina.

„Ef Svíþjóð vinnur skal ég persónulega fara með þér í Ikea og kaupa hvað sem þú villt í nýju höllina þína í L.A., en ef England vinnur þá vil ég að þú komir á landsleik á Wembley í ensku landsliðstreyjunni og borðið fisk og franskar í hálfleik“

 

 

Ikea vildi ekki missa af fjörinu og svaraði þeim félögum á Instagram. „Þegar Svíþjóð vinnur þá kemur þú Zlatan með David Beckham til okkar og við bjóðum ykkur í sænskar kjötbollur“

Auglýsing

læk

Instagram