today-is-a-good-day

Ferskur og sumarlegur Mojito með myntu og brómberjum

Hráefni:

  • Fersk brómber
  • ísmolar
  • 4 skot romm
  • einfalt sýróp ( þá er 50/50 vatn og sykur soðið niður þar til úr verður sýróp og kælt niður )
  • sódavatn
  • mynta ( 5-7 lauf í hvern drykk )
  • 3 lime, skorin í sneiðar

Aðferð:

1. Dreifið nokkrum brómberjum í botninn á 4 glösum og merjið þau með skaftinu á gaffli.

2. Bætið 4-5 myntulaufum og 1 msk af sýrópi í hvert glas og merjið þetta með berjunum. Bætið næst 2 lime sneiðum í hvert glas og merjið þetta aftur vel saman.

3. Setjið næst 1 skot af rommi í hvert glas og fyllið þau upp með klökum. Hrærið aðeins upp í þessu með skeið og toppið glösin með sódavatni. Skreytið með myntulaufum og lime sneiðum áður en drykkirnir eru bornir fram.

Auglýsing

læk

Instagram