Grillaður Miðjarðarhafs-kjúklingur með jógúrtsósu

Hráefni/kjúklingur:

  • 10 hvítlauksgeirar rifnir niður
  • 1/2 tsk paprika
  • 1/2 tsk múskat
  • 1/4 tsk malaðar kardimommur
  • Salt og pipar
  • 5 msk ólívuolía
  • 8 úrbeinuð kjúklingalæri
  • 1 rauðlaukur skorinn í sneiðar
  • Safinn af 1 sítrónu

Hráefni/jógúrtsósa:

  • 1 hvítlauksgeiri rifinn niður
  • 2 dl ferskt dill, saxað niður
  • 3 dl grískt jógúrt
  • 1 msk ólívuolía
  • safinn af 1/2 sítrónu
  • cayenne pipar, eftir smekk
  • Salt

Aðferð:

1. Blandið öllum hráefnum í sósuna saman og blandið vel. Geymið hana í kæli á meðan kjúklingurinn er eldaður.

2. Takið eldfast mót og dreifið úr rauðlauknum í botninn. Takið næst litla skál og blandið saman rifnum hvítlauk, papriku, múskati, kardimommum, salti, pipar og 3 msk af ólívuolíu. Nuddið kjúklingalærin vel upp úr blöndunni og leggið þau yfir laukinn í eldfasta mótinu. Hellið sítrónusafa og 2 msk af ólívuolíu yfir kjúklinginn, setjið filmu eða lok yfir og kælið í um 2 klst.

3. Grillið kjúklinginn í um 5-6 mín á hvorri hlið og berið fram með jógúrtsósunni ásamt fersku salati.

Auglýsing

læk

Instagram