today-is-a-good-day

Rjómalöguð rækjusúpa

Hráefni:

1 laukur smátt saxaður

1 sellerírót skorin smátt niður

1/2 dós niðursoðnir maukaðir tómatar

1 rauð paprika skorinn í litla bita

1-2 msk humarkraftur

1 dl þurrt hvítvín

750 ml fiskisoð ( vatn+fiskiteningar)

400-500 gr risarækjur ( eða minni)

1-2 dl rjómi

timjan

koníak (ef það er til, má sleppa)

salt

cayenne pipar eða chilli duft

Aðferð:

1. Hitið smjör í góðum potti og steikið lauk, sellerírót og papriku þar til þetta fer að mýkjast. Bætið síðan hvítvíni, fiskisoðinu  og humarkraftinum saman við ásamt tómötunum og timjan. Látið malla í um 30 mínútur og hrærið reglulega í pottinum.

2. Skerið risarækjurnar í helming. Sigtið síðan grænmetið frá súpunni, færið súpuna aftur í pottinn og bætið rjómanum og rækjunum saman við. Látið þetta malla í 3-4 mínútur eða þar til rækjurnar eru eldaðar í gegn. Smakkið til með koníaki, salti og cayenne pipar. Berið fram með þeyttum rjómatoppi og góðu brauði.

Auglýsing

læk

Instagram