today-is-a-good-day

Emma festi hjálpartæki ástarlífsins á versta stað og endaði á spítala – sagan er aðeins fyrir fullorðna

(Sagan er aðeins við hæfi fullorðinna einstaklinga sem eru ekki viðkvæmir)

Hin 24 ára gamla Emma Phillips var að stunda einhverskonar leikfimi í svefnherberginu ásamt kærasta sínum þegar þau taka eftir að titrari, sem þau höfðu brúkað sér til gamans, var horfinn.

Parið leitaði af sér allan grun í rúminu en áttuðu sig svo nokkuð hratt á því að titrarinn var inni í rassinum á Emmu – í fullum gangi – og ekki nokkur leið að ná honum út.

Emma og kærastinn gerðu margar tilraunir til þess að bjarga málunum, þar á meðal með gaffli og grilltöng (ÁI!) en ekkert gekk. Þau þurftu á endanum að hringja á sjúkrabíl, þar sem þau voru of ölvuð til þess að keyra sjálf á sjúkrahús.

Það tókst að fjarlægja aðskotahlutinn án aðgerðar, en Emma og kærastinn smelltu nokkrum myndum af Emmu á sjúkrahúsinu, auðvitað.

 

Parið segist vilja vera öðrum víti til varnaðar en Emma birti þessa mynd af sér eftir uppákomuna og segir ekki sniðugt að nota hjálpartæki ástarlífsins undir áhrifum áfengis.

Auglýsing

læk

Instagram