Söngkonan SIA fór á klósettið í miðju útvarpsviðtali og sturtaði niður – stjörnur eru líka fólk! – myndband

Hin 44 ára gamla Sia hefur toppað vinsældalista um allan heim og á eitt vinsælasta tónlistarmyndband í sögu Youtube.

Sia er þekkt fyrir heiðarleg svör í viðtölum og hefur ekki viljað þykjast vera önnur en hún er. Það verður þó að teljast frekar óvenjulegt að vera í útvarpsviðtali og setjast á klósettið í miðju spjalli. Sia þurfti að pissa í beinni útsendingu og lét viðtalið ekki stoppa sig.

Hún sturtaði svo niður og þá spurði þáttastjórnandinn hvort hún hafi verið að nota klósettið.

Sia svaraði heiðarlega: „Já, þú hefur væntanlega heyrt í mér nota klósettið og sturta niður – ég kann ekki að skammast mín!“

Hún bætti svo við: „Gettu hvað? Stjörnur eru alveg eins og við hin!“

Auglýsing

læk

Instagram