Strákar hættið að senda dickpics – ÞETTA eru sms-in sem stelpur vilja fá!

Að senda sms er erfiður leikur. Hann er þó auðveldari en þessi klassísku venjulegu samtöl því þú hefur alltaf nokkrar mínútur til þess að hugsa. Þess vegna er skrítið að þú hafi eytt þeim í að taka þá ákvörðun að senda mynd af draslinu þínu.

1. „Góðan daginn“ smsið.
Vinalegt sms og gaman að fá það. Það getur þó verið heldur ópersónulegt og býður ekki upp á margt annað en að senda til baka „jú góðan daginn“ það er þess vegna góð hugmynd að henda með „hvernig hefur þú það“ eða ef sambandið er orðið aðeins þróaðra má henda með gælunafni.

2. „Ég skemmti mér vel“ smsið.
Þetta er það sem þeir senda í útlöndum eftir deit en það sem við sendum þegar við erum komnir heim til okkar morguninn eftir, ef okkur langar að hitta stelpuna aftur. Þetta er sms sem stelpum finnst gaman að fá.

3. „Ég er að hugsa um þig“ smsið.
Hér skal gæta varúðar því þú vilt ekki líta út fyrir að vera krípí. Ef það gengur vel hjá ykkur er þetta sms sem mun gleðja hana. Ef þú varst að hitta hana fyrst áðan mun það hræða hana.

4. „Þú ert öðruvísi en aðrar stelpur“ smsið.
Stelpur fíla hrós. Þetta mundi vera hrós sms. Ekki hrósa fötunum hennar eða hárinu heldur einhverju í persónuleika hennar.

5. „Ég sakna þín“ smsið.
Þetta sms er bara fyrir kærustu eða eitthvað sem er að stefna í að verða alvarlegt. Allt annað er krípí.

6. „Fyrirgefðu“ smsið.
Ef þú varst að þræta við kærustuna þína fyrr um daginn og það situr í þér er fínt að senda sms og leysa málið í stað þess að leyfa því að sitja í ykkur báðum allan daginn.

Auglýsing

læk

Instagram