Védís Eva Guðmundsdóttir var sigurvegarinn í jólaleik Fjallabræðra og Nútímans á dögunum en hún vann tónleika með Fjallabræðrum heima í stofu. Védís ákvað að deila gleðinni með fjölskyldu sinni og kom Rut, mömmu sinni, á óvart í piparkökubakstrinum á sunnudaginn.
Horfðu á myndbandið af þessu jólaævintýri hér fyrir ofan.
Fjölskyldan var samankomin þegar 50 Fjallabræður mættu óvænt á staðinn, gáfu mömmunni nýju plötuna Hosiló, kaffi og súkkulaði og tóku svo nokkur lög.
Kristín Pétursdóttir, útsendari Nútímans, spjallaði við Rut eftir stofutónleikana. Hún vissi ekki alveg hvað hún átti að segja. „Það gæti verið svolítið erfitt að toppa þetta,“ sagði Rut.
Þetta kom mjög mikið á óvart og var mjög skemmtilegt. Það er nú ekki slæmt að byrja jólin svona. Ég held maður gleymi þessu seint.
Eftir þetta er lítið annað hægt að segja en: Gleðileg jól! ????
Næsta myndband ▶️ Ari Jósepsson vill taka til á Bessastöðum
Nútíminn gerði á dögunum samstarfssamning við framleiðslufyrirtækið Skot um framleiðslu á myndböndum. Þetta er því aðeins byrjunin. Á næstunni birtum við miklu fleiri myndbönd um hvað sem er. Við erum rétt að byrja — fylgist með!