Gripu í tómt þegar þeir vildu hitta Kanye á 101 hóteli, rapparinn var farinn á Hótel Rangá

Ferðalag Kim Kardashian, Kanye West og Kourtney Kardashian hefur vakið mikla athygli. Kim og Kourtney létu sjá sig í miðborg Reykjavíkur í dag en Kanye fór samkvæmt heimildum Nútímans með þyrlu á Hótel Rangá fyrir hádegi.

Sjá einnig: Hópur ungmenna söng afmælissönginn fyrir Kourtney Kardashian fyrir utan Bæjarins beztu

Rapparinn hyggst taka upp tónlistarmyndband hér á landi en Nútíminn hitti þessa þrjá ungu menn fyrir utan 101 hótel í morgun. Þeir vildu að sjálfsögðu hitta Kanye en Elísabet Inga, útsendari Nútímans, neyddist til að vera sú sem færði þeim þær slæmu fréttir að hann væri ekki einu sinni í sama póstnúmeri og þeir.

Sjáðu myndbandið hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Instagram