Jóhannes Haukur í nýrri Hollywood-mynd sem gerist fyrir 20.000 árum, sjáðu fyrstu stikluna

Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson fer með hlutverk í Hollywood-myndinni Alpha eftir Albert Hughes. Horfðu á fyrstu stikluna úr myndinni hér fyrir ofan. Alpha er ævintýraleg saga sem gerist fyrir 20.000 árum eftir síðustu ísöld.

Hughes leikstýrði einnig kvikmyndunum The Book of Eli með Denzel Washington í aðalhlutverki og From Hell þar sem Heather Graham lék á móti Johnny Depp. Kodi-Smit Mcphee fer með aðalhlutverkið í myndinni en hann leikur Nightcrawler í X-Men-myndunum.

Myndin verður frumsýnd á Íslandi í mars á næsta ári.

Auglýsing

læk

Instagram