Krúttlegasti rappari landsins neglir Reykjavík með Emmsjé Gauta á afmæli mömmu sinnar

Hinn fimm ára gamli Gunnar Erik kom mömmu sinni heldur betur á óvart þegar myndband af honum að rappa smellinn Reykjavík með Emmsjé Gauta var sýnt í afmælinu hennar á föstudagskvöld. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

Snorri Ólafur, pabbi rapparans, segir í samtali við Nútímann að mæðginin séu miklir aðdáendur Gauta. „Mér datt í hug fyrst hann var nánast með allan textann á hreinu að prófa fá hann til að rappa lagið og gera myndband,“ segir pabbinn.

Við náðum þessu á innan við tveimur tímum — nokkuð seigur 5 ára strákur.

Snorri segir að mamman hafi verið í skýjunum eftir að hún sá myndbandið. „Hann fékk nokkrar vinkonur og frænkur til að tárast,“ segir hann stoltur.

Auglýsing

læk

Instagram