Jóhannes Már Gunnarsson, yfirmatreiðslumeistari mötuneytis Grunnskóla Seltjarnarnes, er einstaklega metnaðarfullur í starfi sínu. Þegar við heyrðum af honum sendum við Pétur Kiernan, útsendara Nútímans, umsvifalaust í mötuneytið til að smakka. Sjáðu stórskemmtilegt myndband frá heimsókninni hér fyrir ofan.
Sjá einnig: Enginn frídagur í meira en ár en það er þess virði, fimm algengar spurningar um Nútímann
Jóhannes segir að krakkarnir séu í flestum tilfellum ánægðir með fiskinn og holla matinn. „Þessir krakkar eru að koma af leikskólanum þar sem þau eru vön að borða fisk á mánudögum,“ segir hann.
Það eru að útskrifast krakkar sem hafa aldrei borðað annað heldur en eftir matseðli frá mér.
Bertha María Ársælsdóttir, matvæla- og næringarfræðingur, vann nýlega úttekt fyrir Grunnskóla Seltjarnesbæjar. Þar kemur fram að samsetning matseðla og framleiðsla matar Jóhannesar Más sé til fyrirmyndar og í samræmi við útgefin viðmið Embættis landlæknis.
Í skýrslu Berthu er minnst sérstaklega á þá ánægjulegu þróun að neysla grænmetis hefur aukist talsvert á milli ára.
Þá er vikið að því hve áhugasamur Jóhannes Már sé og hversu mikinn metnað hann leggi í eldamennskuna fyrir börnin. „Hann hefur því reynslu af því hvernig matnum er tekið og ef eitthvað hlýtur almennt lélegar viðtökur þá er það ekki lengur á matseðli,“ segir í skýrslunni.
„Hann er því stöðugt að þróa matseðilinn og leggur sig fram við að fylgjast með því hvernig börnin taka til matar síns og reynir að tala þau inn á að smakka á matnum þótt þeim lítist ekki á réttinn fyrirfram.“
Niðurstaða Berthu er sú að það hljóti að vera vandfundinn betri skólamatur.
Næsta myndband ▶️ 12 ára bardagakappi vill verða sá besti, mamma hans stendur með honum alla leið
Nútíminn gerði á dögunum samstarfssamning við framleiðslufyrirtækið Skot um framleiðslu á myndböndum. Þetta er því aðeins byrjunin. Á næstunni birtum við miklu fleiri myndbönd um hvað sem er. Við erum rétt að byrja — fylgist með!