Sonur Cristiano Ronaldo sýnir meistaratakta á vellinum

Eplið fellur sannarlega ekki langt frá eikinni hjá fótboltastjörnunni Cristiano Ronaldo. Eftir lok landsleiks Portúgals og Alsír í gær kom sonur Ronaldo, Cristiano Ronaldo Jr. eða Cristianinho eins og hann er kallaður, út á völl til pabba síns og þeir spörkuðu smá í bolta, áhorfendum til mikilar gleði eins og sjá má hér að neðan.

Cristianinho litli, sem er aðeins sjö ára gamall, sýndi meistaratakta á vellinum og framtíðin greinilega björt hjá drengnum skyldi hann feta í fótspor föður síns.

Auglýsing

læk

Instagram