Myndband sýnir hvernig Santiago potar ítrekað í augu Gunnars Nelson í bardaganum örlagaríka

Myndband sem sýnir hvernig Santiago Ponzinibbio potar að minnsta kosti tvisvar í augu Gunnars Nelson og kýlir með fingurna úti hefur verið birt á Youtube.

Mynd sem sýndi Santiago pota í auga Gunnars eftir fyrsta högg þess síðarnefnda hefur vakið talsverða athygli í dag. Myndbandið sýnir einnig hvernig Santiago þrýstir á vinstra auga Gunnars áður en hann rotaði hann. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.

Bardagi þeirra endaði í fyrstu lotu eftir að Santiago rotaði Gunnar Nelson. Gunnar sagðist á blaðamannafundi eftir bardagann hafa byrjað vel en eftir að hann náði fyrsta högginu á Santiago fékk hann fingur í augað. „Ég hefði átt að segja eitthvað því ég sá tvöfalt það sem eftir var af bardaganum,“ sagði hann.

Dómarinn hefði getað gert allt að fimm mínútna hlé á bardaganum ef Gunnar hefði sagt eitthvað. „Kannski hefði ég séð þetta högg en svona er þetta,“ sagði Gunnar en lagði áherslu á að hann væri ekki að afsaka sig heldur vera hreinskilinn.

Auglýsing

læk

Instagram