Sjáðu Gumma Ben tryllast yfir marki Birkis Bjarnasonar í leiknum gegn Portúgal

Með fullri virðingu fyrir öðrum sem lýsa fótbolta á Íslandi þá er Gummi Ben í sérflokki. Hann lýsti leik Íslands og Portúgals á Evrópumótinu í Frakklandi í gær og trylltist eins og þjóðin öll þegar Birkir Bjarnason skoraði í byrjun seinni hálfleiks.

Sem betur fer náðust stórkostleg viðbrögð Gumma við markinu á upptöku sem var sýnd í EM svítunni í Sjónvarpi Símans rétt í þessu. Horfðu á þetta stórkostlega myndband hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Instagram