today-is-a-good-day

Þeir sem hafa áhyggjur af umhverfinu borða minna kjöt

Yfir helmingur landsmanna neytir mjólkurvara og hvíts kjöts oft eða alltaf sem hluta af sínu daglega mataræði samkvæmt umhverfiskönnun MMR sem framkvæmd var dagana 23. maí – 29. maí 2019. Tæplega einn af hverjum fimm neyta sjaldan eða aldrei mjólkurvara eða rauðs kjöts og nærri fjórðungur landsmanna segir fisk sjaldan eða aldrei vera hluta af sínu daglega mataræði.

Sjá einnig: Meirihluti Íslendinga segist hafa breytt hegðun sinni til að lágmarka áhrif sín á umhverfi og loftslagsbreytingar

Karlmenn reyndust líklegri en konur til að segja rautt kjöt oft eða alltaf vera hluta af daglegu mataræði sínu en 58 prósent þeirra segja það á móti 39 prósent kvenna.

Þeir sem eldri eru eru líklegri til þess að neyta fisks en svarendur á aldrinum 50 til 67 ára og 68 ára og eldri reyndust líklegri en yngri svarendur til að segjast borða fisk oft eða alltaf sem hluta af sínu daglega mataræði.

Grænmetisfæði er vinsælla á meðal þeirra sem yngri eru en hátt í helmingur svarenda á aldrinum 18 til 29 ára segist oft eða alltaf neyta grænmetisfæðis sem hluta af daglegu mataræði.

Stuðningsfólk Vinstri grænna var líklegast til að segja grænmetisfæði, umhverfisvæn matvæli, lífræn matvæli og veganfæði oft eða alltaf vera hluta af sínu daglega mataræði en stuðningsfólk Framsóknarflokksins reyndist líklegast til að segjast oft eða alltaf neyta rauðs kjöts.

Neysla á rauðu kjöti fór minnkandi með auknum áhyggjum af hlýnun jarðar en 72 prósent þeirra sem kváðust hafa mjög litlar áhyggjur sögðu rautt kjöt oft eða alltaf vera hluta af sínu daglega mataræði, samanborið við 39 prósent þeirra sem kváðust hafa mjög miklar áhyggjur. Þá fór hlutfall þeirra sem kváðust neyta mjólkurvara og rauðs kjöts oft eða alltaf sem hluta af daglegu mataræði minnkandi með auknum breytingum á matarvenjum í þágu umhverfisins.

Auglýsing

læk

Instagram