nýtt rappmyndband frá Cheddy Carter

Hljómsveitin Cheddy Carter sendi frá sér myndband við lagið Smoked Lamb í gær. Myndbandið var tekið upp í Hafnarfirði í sumar og leikstýrt af Cheddy Carter sjálfum. Lagið er að finna á fyrstu EP plötu sveitarinnar, Hors.D’oeuvres, sem kom út í fyrra.

Í síðustu viku gaf Cheddy Carter út nýja stuttskífu sem ber titilinn Yellow Magic og fylgdu þeir útgáfunni eftir með tónleikum á Prikinu síðastliðinn laugardag. Hægt er að nálgast Yellow Magic á Spotify og SoundCloud (það sama á við um Hors.D’oeuvres).

Auglýsing

læk

Instagram