Írsk stjórnvöld siga hernum á eigin borgara

Írska ríkisstjórnin hefur ákveðið að kalla til herinn til að aðstoða við aðgerðir gegn mótmælendum sem hafa lokað aðgengi að eldsneytisbirgðum víða um land. Aðgerðin kemur í kjölfar umfangsmikilla mótmæla sem hafa valdið truflunum á samgöngum og dreifingu eldsneytis.

Lokanir á lykilinnviðum valda röskun

Mótmælin hófust á þriðjudag þegar hópar ökumanna lokuðu vegum í Dublin og fleiri borgum, auk þess að aka viljandi hægt til að teppa umferð. Tilefni þeirra er innleiðing reglugerða Evrópusambandsins sem munu fela í sér mikinn kostnað fyrir bændur, en bændur hafa áður mótmælt víða innan landa Evrópusambandsins vegna sama máls, en írksir bændur segja að þær reglugerðir þýði um 40 prósent hækkun á eldsneytiskostnaði. Þá hafa mótmælendur einnig komið fyrir þungum ökutækjum við eldsneytisbirgðastöðvar og hindrað aðgang að þeim.

Auglýsing

Afleiðingarnar hafa verið miklar. Bensínstöðvar sem ekki fá áfyllingar eru að tæmast og ferðalangar á leið til flugvallarins í Dublin hafa þurft að ganga með farangur sinn vegna umferðarteppa.

Herinn kallaður til til að fjarlægja ökutæki

Yfirvöld hafa staðfest að herinn verði nýttur til að fjarlægja ökutæki sem loka aðgengi að eldsneytisbirgðum. Samkvæmt stjórnvöldum er þetta gert til að tryggja virkni mikilvægra innviða.

Varaforstjóri lögreglunnar, Shawna Coxon, hvatti mótmælendur til að hætta tafarlaust aðgerðum sínum og dreifa sér, annars geti þeir átt yfir höfði sér allt að sex mánaða fangelsi.

Stjórnvöld vara við lagalegum afleiðingum

Dómsmálaráðherra landsins, Jim O’Callaghan, sagði að mótmælendur gætu átt yfir höfði sér alvarlegar afleiðingar, þar á meðal vandamál tengd tryggingum og endurnýjun ökuskírteina.

Forsætisráðherrann, Micheál Martin, gagnrýndi aðferðir mótmælenda og sagði að lokanir á vegum og aðgangi að eldsneyti væru ekki sanngjörn mótmælaaðferð.

Varnarmálaráðherrann, Helen McEntee, sagði að hluti mótmælanna væri farinn að hegða sér á refsiverðan hátt en lagði áherslu á að notkun hersins væri ekki fyrsta úrræði.

Mótmælendur segjast ekki ráða við kostnað

Fulltrúar mótmælenda segja að hækkandi eldsneytisverð sé orðið ósjálfbært fyrir marga. James Geoghegan, sem talar fyrir hönd hópsins, sagði að rekstur lítilla fyrirtækja væri í hættu.

„Við ráðum einfaldlega ekki við þetta,“ sagði hann og bætti við að ekki væri hægt að velta kostnaðinum yfir á bændur.

Annar fulltrúi, John Dallon, sagði að óánægja með stjórnvöld væri útbreidd meðal almennings.

Mótmæli halda áfram þrátt fyrir viðvaranir

Þrátt fyrir viðvaranir stjórnvalda hafa samtök mótmælenda tilkynnt að aðgerðir muni halda áfram og jafnvel aukast ef ekki verði brugðist við kröfum þeirra.

Í yfirlýsingu sagði hópurinn að mótmælin myndu halda áfram þar til stjórnvöld hlusta á fólkið og að ástandið gæti versnað með hverri viku sem líður.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing