Móðir annarrar stúlkunnar sem var plötuð upp í bíl af mönnum af arabískum uppruna stígur fram

Móðir annarrar stúlkunnar sem koma við sögu í máli þar sem þrír menn eru grunaðir um að hafa táldregið fjórtán ára stúlkur, hefur stigið fram og lýsir atvikinu í Facebook hópnum Mæðratips. Hún segir það hafa verið afar ógnvekjandi reynslu fyrir fjölskylduna. Málið, sem lögregla hefur til rannsóknar, snýr að því að tvær ungar stúlkur fundust í bíl með þremur fullorðnum mönnum sem hún segir vera af arabískum uppruna, og voru stúlkurnar sagðar undir áhrifum.

Náði ekki sambandi og varð uggandi

Móðirin segir aðdragandann hafa valdið henni miklum áhyggjum, en hún hafi ekki náð sambandi við dóttur sína í nokkurn tíma áður en lögregla hafði afskipti af málinu.

Auglýsing Auglýsing

„Ég reyndi ítrekað að ná í hana en fékk ekkert svar og slökkt var á símanum. Það var mjög óþægileg tilfinning,“ segir hún.

Samkvæmt því sem síðar kom fram segir hún að stúlkunum hafi ekki verið leyft að hlaða síma sína á meðan þær voru í bílnum. Skömmu síðar hafi dóttir hennar haft samband frá lögreglustöð og beðið hana um að koma strax.

Leggur ábyrgðina alfarið á mennina

Móðirin leggur ríka áherslu á að ábyrgðin liggi alfarið hjá fullorðnu aðilunum sem beittu blekkingum til að komast í samband við stúlkurnar.

„Þetta eru einstaklingar sem ná trausti barna með því að ljúga og blekkja. Ábyrgðin er þeirra, ekki barnanna,“ segir hún. Samkvæmt upplýsingum sem móðirin segist hafa séð sjálf í tengslum við málið voru mennirnir af arabískum uppruna. Hún tekur þó fram að um sé að ræða lýsingu á atvikinu, en ekki alhæfingu um hópa.

Hún segir jafnframt mikilvægt að leiðrétta umræðu sem hafi skapast í kjölfar málsins, meðal annars um aðstæður stúlknanna.

„Þær voru ekki úti að næturlagi í miðbænum. Þetta gerðist um kvöld, innan útivistartíma,“ útskýrir hún og bætir við að foreldrar setji skýr mörk, en þrátt fyrir það geti svona atvik átt sér stað.

Hvetur foreldra til að vera vakandi

Að hennar sögn sýnir þetta bara hversu útsjónarsamir og sannfærandi þeir sem beita slíkum blekkingum geta verið. Hún hvetur foreldra til að ræða reglulega við börn sín um öryggi á netinu, minna þau á að treysta ekki ókunnugum og leggja ríka áherslu á að fara aldrei upp í bíl með fólki sem þau þekkja ekki.

„Við þurfum að vera vakandi. Þetta getur gerst þrátt fyrir alla varúð.“

 

Auglýsing Auglýsing

læk

Auglýsing Auglýsing
Auglýsing Auglýsing