„Útlendingaandúð og kvenfyrirlitning í verki“ – Brynjar Karl harðorður í garð Samfylkingarinnar

Brynjar Karl, þjálfari og forsprakki íþróttafélagsins Aþenu í Efra Breiðholti, skrifaði beittan pistil á samfélagsmiðlum þar sem hann sakar Reykjavíkurborg um alvarlega vanrækslu og gengur svo langt að kalla framkomu borgarstarfsmanna útlendingaandúð og kvenfyrirlitningu.

„Ellefu börn í íþróttum“

Samkvæmt Brynjari voru aðeins 11 ungmenni úr Efra Breiðholti sem sóttu íþróttastarf utan skóla þegar Aþena hóf starfsemi sína, þrátt fyrir að í hverfinu búi um 10.500 manns.

Auglýsing

Hann segir þessar tölur endurspegla algjört áhugaleysi borgaryfirvalda gagnvart hverfinu, þar sem stór hluti íbúa er af erlendum uppruna og kosningaþátttaka lág.

Segir borgina hindra uppbyggingu

Brynjar fullyrðir að Reykjavíkurborg láti félagið ekki aðeins afskiptalaust, heldur setji beinlínis hindranir í veg fyrir starfsemi félagsins. Hann segir Aþenu ekki óska eftir fjárstuðningi, heldur einfaldlega að fá að byggja upp aðstöðu án þess að borgin reyni að koma í veg fyrir slíkt.

„Við í Aþenu erum ekki að biðja um krónu, ha ha, myndum aldrei dreyma um að fá aðstoð frá Reykjavíkurborg. EN ekki skemma uppbygginguna okkar. Gefið okkur heiðarleg svör. Ekki stoppa okkur frá því að byggja sjálf upp þá aðstöðu sem við verðum að hafa ef við ætlum að vaxa og eiga möguleika á að bjóða krökkunum í Efra-Breiðholti upp á sömu tækifæri og annars staðar í borginni,“ segir Brynjar og bætir við að borgaryfirvöld reyni að kæfa starfsemina vegna gagnrýni sem þeim er ekki að skapi.

Hann segir að í tvö ár hafi félagið reynt að forðast fjölmiðlaumfjöllun og reynt að sýna kurteisi en án árangurs. Nú telji hann sig knúinn til að segja hlutina opinberlega og gagnrýnir sérstaklega Samfylkinguna í borginni og segir að ef fólk sýni ekki næga undirgefni og kyssi ekki réttu rassana, þá hiki starfsfólk borgarinnar ekki við að nota völd sín til að refsa.

Tilbúinn að vinna með Pétri eftir hreinsanir

Brynjar tekur þó sérstaklega fram að gagnrýnin beinist ekki að öllum einstaklingum innan Samfylkingarinnar. Hann segist kunna vel við Pétur Marteinsson og myndi treysta honum til að taka á málunum með sóma.

Hann gengur raunar lengra og segist tilbúinn að kjósa Samfylkinguna með Pétur í broddi fylkingar þegar búið sé að hreinsa vel út úr flokknum. Þá segist hann jafnvel myndu fara á lista með Pétri, ef búið væri að „lofta út“.

Að mati Brynjars þarf Pétur þó að bíða í eitt kjörtímabil, eða þar til þær hreinsanir hafi farið fram og hann hvetur kjósendur til að veita núverandi meirihluta ekki áframhaldandi umboð í næstu kosningum. Hann segir að hans eina markmið sé að bæta stöðu iðkenda og tryggja börnum í hverfinu sömu tækifæri og annars staðar í borginni.

Starf með 120 stelpum í vexti

Að lokum bendir Brynjar á að Aþena hafi, þrátt fyrir aðstæður, byggt upp starf með um 120 stúlkum og sé með lið í efstu deild. Hann segir þó að áframhaldandi uppbygging velti alfarið á því hvort borgin hætti að standa í vegi fyrir starfseminni.

Málið varpar ljósi á harða togstreitu milli grasrótarstarfs og stjórnsýslu borgarinnar, og gæti orðið að stærra pólitísku hitamáli á næstu vikum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing