Hlustaðu á nýtt lag Hinsegin daga: „Við vildum að lagið hefði dass af Eurovision fíling“

Hinsegin dagar verða haldnir dagana 2.til 7. ágúst í Reykjavík. Hluti af hátíðinni er útgáfa á Gay Pride lagi.

Lagið í ár kallast „Við getum sameinast“ og er það samið af hljómsveitinni Setpember. Hljómsveitina skipa Andri Þór, Birgir Steinn og Eyþór Úlfar. Bjartmar Þórðarson flytur lagið sem má heyra hér fyrir neðan.

Auglýsing

Á vefnum Gay Iceland kemur fram að textinn fjalli um það hvernig við getum sameinast á sviði hamingju, því við erum öll eins – öll jöfn. „Við vildum að lagið hefði dass af Eurovision fíling en væri samt ekki allt í gegn týpískt Eurovision lag,“ segir Eyþór Úlfar í viðtali á vefnum Gay Iceland.

Hápunktur hinsegin daga í Reykjavík er Gleðigangan sem fer fram laugardaginn 6.ágúst klukkan 14. Þar má fólk eiga von á því að heyra lagið sjálft í flutningi Bjartmars. Hátíðinni lýkur síðan með sögukvöldi á sunnudeginum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing