Fótboltamaðurinn Gylfi Sigurðsson hefur verið seldur til Everton frá Swansea. Bæði lið spila í ensku úrvalsdeildinni og samkvæmt breska ríkisútvarpinu BBC er kaupverðið 45 milljónir punda, eða um 6,3 milljarðar króna.
Gylfi er því auðveldlega orðinn langdýrasti íslenski fótboltamaðurinn og er reyndar á meðal dýrustu fótboltamanna sögunnar.
6,3 milljarðar króna er dágóð upphæð. Gylfi styrkir lið Everton mjög mikið en hann var einn af bestu leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. En hvað hefði Everton getað keypt fyrir þessa upphæð, hefði stjórn félagsins ekki náð að semja við Swansea og hefði af einhverjum ástæðum ákveðið að eyða peningunum í annað en fótboltamenn? Nútíminn skoðaði málið.
2. Everton gæti boðið öllum tæplega 2 milljónum íbúum Lettlands í lúxussalinn í Smáralind. Það er verið að sýna Atomic Blonde með Charlize Theron. Vá, hvað það væri samt furðulegt.
3. Everton gæti keypt þrjá fíla í Costco handa öllum íbúum Seltjarnarness. Af hverju að eiga einn ef maður getur átt tvo? Og til hvers að eiga tvo ef maður getur átt þrjá? Einn inni í stofu, einn úti í garði og einn uppi í bústað. Þetta væri samt mjög undarleg fjárfesting.
4. Everton gæti líka keypt nýjan Volvo XC90 af flottustu gerð handa öllum nemendum Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Þau væru flott í Hvalfjarðargöngunum á nýju jeppunum sínum en ákvörðunin væri reyndar mjög skrýtin.
5. Keypt risapakka 365, Sjónvarp Símans og Netflix fyrir öll heimili á Íslandi og rústað þannig framlegð heillar þjóðar. Furðuleg ákvörðun hjá fótboltaliði á Englandi en áhugaverð tilraun engu að síður.
6. Keypt Everton búning; treyju, stuttbuxur, sokka og trefil handa öllum Íslendingum. Þannig gæti öll þjóðin staðið með Gylfa og orðið svokallaðir full kit wankers um leið. Fjárfestingin væri reyndar frekar góð fyrir Everton sem myndi vekja heimsathygli.
Það er kannski bara best að Everton keypti Gylfa, sem mun eflaust sýna svona takta í leikjum liðsins
Fótboltaland er nýr knattspyrnutengdur skemmtigarður sem mun opna á árinu 2022 á höfuðborgarsvæðinu og er hann fyrsti knattspyrnutengdi skemmtigarðurinn sem opnar á Íslandi.
Í Fótboltalandi...
Sjáðu hvað gerist bak við tjöldin þegar stóru liðin mætast í enska boltanum.
Fótboltaveislan heldur svo áfram yfir öll jólin og áramótin, svo það er...
Martin Neumaier, þingmaður Frjálslyndra Demókrata í Þýskalandi sést í myndbandi sem fór í dreifingu á samfélagsmiðlum en í því er hann að sleikja þvagskálar...
Úkraínskir hermenn hörfa undan Rússum
Úkraínskir hermenn hafa þurft að hörfa frá mörgum þorpum og bæjum í Kharkiv héraðinu eftir árásir Rússa.
Sprengjum hefur rignt yfir...
Í nýlegri myndbandsupptöku varar Donald Trump við því að „brjálaðir vinstrimenn“ ætli að sér að reyna að nota „ný Covid-afbrigði“ til að hafa áhrif á komandi forsetakosningar, þeir...
Birna Ólafsdóttir var gestur í þættinum Spjallið með Frosta Logasyni og ræddi meðal annars áhrif fangelsisvistar á fjölskyldur. Hún segir að það sé ekki...
Flestir Íslendingar kannast við Magnús Ver Magnússon en hann varð fjórum sinnum sterkasti maður heims.
Youtube rásin Big Loz Official hefur gert frábæra heimildarmynd um...
Inga Sæland, formaður Flokks Fólksins sendi fyrirspurn á Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra þar sem hún spurði:
„Hversu margir einstaklingar, sem hefur verið synjað um alþjóðlega vernd...
Grímuklæddir menn réðust á bifreið sem flutti glæpamann sem þekktur er undir nafninu „Flugan“, í Frakklandi í dag.
Mennirnir voru vopnaðir hálfsjálfvirkum vélbyssum og hófu...
Ástralski læknirinn Richard Scolyer hefur gengist undir heimsins fyrstu meðferð við glioblastoma, sem er tegund af heilakrabbameini sem er sérlega skæð en sú tegund...
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Patrick Florence Riley, 45 ára, frá Bandaríkjunum.
Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Patricks, eða vita hvar hann er...
Vladimir Pútín forseti Rússlands rak í dag Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands en hinn 68 ára gamli Sergei hefur verið í embætti síðan 2012.
Samkvæmt BBC...