Vilhelm Neto og Júlíana gera grín að íslenskunni í Maniac

Sjónvarpsserían Maniac var frumsýnd á Netflix 21. september síðastliðinn og hafa þættirnir sem stórleikarnir Jonah Hill og Emma Stone leika í slegið rækilega í gegn. Líkt og við fjölluðum um hér á Nútímanum um daginn hefur sérkennileg Íslandstenging í þáttunum vakið talsverða athygli en í einu atriði talar Jonah Hill ansi bjagaða íslensku.

Ef þú átt eftir að horfa á þættina, ætlar að horfa seinna og vilt ekkert vita skaltu ekki horfa á myndbandið hér fyrir neðan og hætta að lesa.

Sjá einnig:Sjáðu stórkostlegt myndband af Jonah Hill tala „íslensku“: „Eki verra skræffa, skal!“

Leiklistarneminn og grínistinn Vilhelm Neto nýtti tækifærið og bjó til stórskemmtilegt myndband ásamt Júlíönu Kristínu.

Sjáðu myndbandið:

Sjá einnig: Vilhelm Neto túlkar íslenskar bíómyndir fullkomlega í drepfyndnu myndbandi

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem að Vilhelm gerir grín að íslensku sem birst hefur í vinsælum sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Á dögunum birti hann svipað myndband þegar Aquaman reyndi við íslenskuna.

Auglýsing

læk

Instagram