Kristjánsbakarí selur Bragga með innfluttum stráum frá Svíþjóð: „Eins og með alla Bragga var engu til sparað“

Kristjánsbakarí auglýsti á dögunum nýja vöru sem er komin í sölu hjá þeim á Akureyri. Um er að ræða gómsætan bragga með sérinnfluttum stráum frá Svíþjóð. Þetta kemur fram í frétt Kaffið.is.

Bakaríið segir ekkert hafa verið sparað við gerð braggans og vandað til verka við hvert handtak. Nú fagna þau loksins verklokum en ítreka þó að ekki hafi farið heilar 20.000 vinnustundir í þennan tiltekna Bragga. Kristjánsbakarí hefur verið með Bragga í sölu lengi vel en nú hefur hann fengið allsherjar endurbætur, m.a. með innfluttu stráunum.

Sjá einnig: Vildu skapa strandstemningu með innfluttu stráunum: „Verið að gera úlfalda úr mýflugu“

,,Eftirspurn eftir Bragga hefur aldrei verið meiri, þó aðallega vegna þess hve ódýr hann er miðað við aðra bragga. Eins og með alla Bragga var engu til sparað í þennan Bragga. Stráin til skreytingar voru sérinnflutt frá Svíþjóð og vandað til verka við hvert handtak. Það skal þó viðurkennast að ekki fóru 20.000 vinnustundir í þennan Bragga,“ segir í Facebook færslu frá Bakaríinu.

Auglýsing

læk

Instagram