Kit Harrington grét þegar hann las handrit Jon Snow fyrir lokaþátt Game of Thrones

Myndband af viðbrögðum Kit Harrington þegar hann las handrit lokaþáttar Game of Thrones hefur vakið mikla athygli á netheimum í vikunni. Kit fór með hlutverk Jon Snow í þáttunum en þegar hann las um það hvað Jon Snow gerði í lokaþættinum táraðist leikarinn. Myndbandið má sjá neðar í fréttinni en ekki lesa ef þú hefur ekki horft á lokaþáttinn.

Ekki lesa meira….

……….

Ekki gera það….

……….

 

 

 

Á myndbandinu má sjá viðbrögð Kit þegar hann kemst að því að Jon Snow verður Danaerys Targaryen að bana í lokaþættinum en sögupersónurnar voru ástfangnar. Hann horfir í átt að Emiliu Clarke sem fer með hlutverk Danaerys í þáttunum en hún virðist einnig fella tár.

Auglýsing

læk

Instagram