„Við vorum sannarlega hræddar um líf okkar“ segja ástralskar konur sem kærðu atvik til Samgöngustofu eftir að hafa verið skildar eftir í slagviðri og rukkaðar um 30 þúsund krónur fyrir 15 mínútna fer.
Tvær ástralskar konur sem ferðuðust til Íslands, Mei og Belinda, hafa sent formlega kæru til íslenskra yfirvalda þar sem þær lýsa ógnvekjandi atviki sem þær urðu fyrir í Reykjavík þann 10. mars 2025.
Logið að okkur frá upphafi
Í kærunni, sem var móttekin af Samgöngustofu 28. apríl, segja þær frá því hvernig þær voru blekktar af leigubílstjóra og skildar eftir í frosthörkum á afskekktu fjallasvæði – og allt þetta eftir að hafa verið rukkaðar um margfalt hærra verð en gefið var upp.
„Við, Mei-(eftirnafn fjarlægt) og Belinda (eftirnafn fjarlægt) óskum eftir að kæra alvarlegt og hættulegt atvik sem átti sér stað í Reykjavík á kvöldi 10. mars 2025,“ segja þær í upphafi.
Þær bókuðu ferð með fyrirtækinu The Ice Taxi í þeirri trú að það væri lögmætt.
Ökumaðurinn, sem kynnti sig sem Mohamoud Farah Hassan, sagðist starfa fyrir Hreyfill og segja þær að þessi fullyrðing hafi verið staðfest af móttökuritara á Hótel Þingholt by Center Hotels.
Reiddist skyndilega
Ferðin átti aðeins að taka 15 mínútur, en í stað þess að aka með þær á réttan áfangastað, lýsa þær því að ökumaðurinn hafi vísvitandi ekið þeim upp í Bláfjöll, í þoku og myrkri.
„Hann varð æstur, fjandsamlegur og kærulaus, og ók á ofsahraða í gegnum þykkan þoku og myrkur,“ segja þær og bæta við að þegar þær bentu honum á að hann væri að fara vitlausa leið, hafi viðbrögð hans verið mjög ógnandi.
Þær kröfðust þess að hann snéri við og færi þær á hinn raunverulega áfangastað, Aurora Base Camp (Bláfjallavegur Hafnarfjörður 220 IS).
„Ég hélt virkilega að hann væri að fara með okkur eitthvert til að meiða okkur. Þetta var hræðilegt“
Þá krafðist hann skyndilega 27.500 króna gjalds fyrir ferðina, þrátt fyrir að hafa áður nefnt 7.000 krónur sem verð.
Þorðu ekki öðru en að borga
„Við vorum neyddar til að greiða, enda undir þrýstingi, þar sem aðstæðurnar urðu sífellt ógnvænlegri,“ segja þær.
Upphaflega hafði hann krafist 30.000 króna en lækkað summuna lítillega.
Þegar komið var á staðinn, sem reyndist mannlaus og yfirgefinn, tók ökumaðurinn peninginn og fór en skildi þær.
„Til að bæta gráu ofan á svart, þá voru búðirnar yfirgefnar. Ökumaðurinn tók peningana okkar og yfirgaf okkur í frostinu, aleinar. Á því augnabliki óttuðumst við raunverulega um öryggi okkar.“
Eftir mikla leit tókst þeim að ná sambandi við aðila sem gat sent annan bíl til að sækja þær.
Þær lýsa málinu sem bæði alvarlegri ógn við öryggi sitt og svikastarfsemi og krefjast tafarlausra viðbragða frá íslenskum stjórnvöldum og eftirlitsaðilum.
Samkvæmt nýjustu upplýsingum hefur ekkert svar borist frá íslenskum yfirvöldum við kærunni.
„Ég hélt virkilega að hann ætlaði að meiða okkur“
Í samtali við blaðamann lýsir Belinda, annar farþeginn, ótta sínum og viðbrögðum eftir atvikið.
„Ég hélt virkilega að hann væri að fara með okkur eitthvert til að meiða okkur. Þetta var hræðilegt. Við áttum að vera í leigubílnum í mesta lagi 15 mínútur. En hann hélt okkur inni í bílnum í nærri einn og hálfan klukkutíma,“ segir hún.
Hún bætir við að hún hafi reynt að kvarta hjá The Ice Taxi daginn eftir, en þar hafi hún fengið mann að nafni Hamse í síma, sem síðar kom í ljós að væri bróðir ökumannsins.
„Hamse var virkilega fjandsamlegur þegar hann komst að því að ég væri kona. Hann sagði okkur vera bara í ruglinu og að hans útgáfa væri mikilvægari en okkar sjónarhorn. Hann sagði mér bókstaflega að þegja. Við rifumst og ég sagði honum að það skipti engu máli hvað hann segði núna, því við ætluðum með málið til lögreglu. Þá skellti hann á,“ segir Belinda.
Hér fyrir neðan má sjá frásögn þeirra af ferðinni.