Skólastúlkur í skoskum bæ verða fyrir ítrekaðri áreitni hælisleitenda á nálægu hóteli – Lausn yfirvalda er að láta þær fá neyðarflautur

Skólastúlkur í bænum Dumfries í Skotlandi hafa fengið afhentar svokallaðar neyðarflautur (rape whistles) frá lögreglu bæjarins eftir að hafa ítrekað verið áreittar og veitt eftirför af karlkyns hælisleitendum sem dvelja á hóteli í nágrenninu. Um er að ræða hælisleitendur sem eru vistaðir á hótelinu vegna samninga við bresk stjórnvöld.

Myndatökur og óviðeigandi hegðun

Samkvæmt umfjöllun breskra miðla var gripið til þessara aðgerða eftir að tilkynningar bárust um að verið væri að taka myndir af stúlkunum í frímínútum án leyfis. Lögregla staðfesti að búið væri að afhenda stúlkunum flauturnar og þeim gefin góð ráð hvernig best sé að tryggja öryggi sitt.

Auglýsing

Foreldri eins nemanda segir að hópur karlmanna hafi ítrekað safnast saman nálægt skólanum í kringum hádegi og glápt á nemendur. Þá hafi borist fjöldi ábendinga til lögreglu um að stúlkur hefðu orðið fyrir óviðeigandi athugasemdum frá mönnunum.

Sumar stúlkur eru sagðar óttaslegnar og forðast að vera einar á ferð í bænum.

Lögregla fann ekki sönnun um refsiverða háttsemi

Lögreglan í Skotlandi segir að rannsókn á grunsamlegri hegðun hafi ekki leitt í ljós refsiverð brot. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að tveir menn hafi verið rannsakaðir en ekkert hafi bent til að brot hefðu verið framin.

Í febrúar var 19 ára maður handtekinn vegna ábendinga tengdum slíku máli, en hann var síðar látinn laus án ákæru.

Kalla eftir auknu eftirliti og aðgerðum

Málið hefur vakið hörð viðbrögð á svæðinu. Skoski þingmaðurinn Craig Hoy segir ástandið mjög alvarleg og heimtar að yfirvöld tryggi öryggi íbúa og fylgist betur með þeim sem dvelja á hótelinu.

Hótelið sem hýsir hælisleitendurna og hefur áður verið vettvangur mótmæla eftir að einstaklingur sem þar dvaldi var handtekinn í tengslum við annað kynferðisbrot.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing