today-is-a-good-day

Ari Eldjárn fór á kostum í Kviss

Kviss er stórskemmtilegur spurningaþáttur á Stöð 2, í umsjón uppistandarans og sjónvarpsmannsins Björns Braga Arnarssonar, þar sem þekktir Íslendingar keppa fyrir hönd íþróttafélaganna sem þeir styðja.

Þótt liðin skiptist eftir íþróttafélögum er ekki um íþróttaþátt að ræða, heldur eru spurningar úr öllum áttum. Keppendur eru ekki íþróttafólk heldur nægir að þeir hafi alist upp í hverfi íþróttafélagsins eða hafi æft íþróttir með félaginu á yngri árum. Liðin sem vinna sínar viðureignir halda áfram leik þar til eitt lið stendur uppi sem sigurvegari og verður krýnt Íslandsmeistari í Kviss spurningakeppni 2020.

Á laugardagskvöldið síðasta mættust KR og KA í 16-liða úrslitunum. Í liði KR voru þau Hrefna Sætran og Ari Eldjárn. Lið KA skipuðu þau Sigurður Gunnarsson og Karen Björg Þorsteinsdóttir.

Hér fyrir neðan má sjá Ara Eldjárn fara á kostum í þættinum.

Auglýsing

læk

Instagram