today-is-a-good-day

Friðarsúlan í Viðey tendruð

Annað kvöld klukkan klukkan 21 verður Friðarsúlan í Viðey, listaverk Yoko Ono, tendruð í 14. sinn á fæðingardegi John Lennon.

Hann hefði orðið áttræður á árinu og mun súlan loga til 8. desember, sem er dánardagur Lennon.

Vegna COVID-19 verður enginn viðburður í tengslum við tendrunina en hægt verður að fylgjast með í beinu streymi frá eyjunni. Dag­ur B. Eggerts­son borg­ar­stjóri mun flytja stutt ávarp og að því loknu verður kveikt á Friðarsúl­unni.

Fólk er hvatt til þess að fylgjast með tendrun Friðarsúlunnar og hugsa um frið. Beint streymi verður á síðunni imag­inepeacet­ower.com, og á vefsíðu og face­booksíðu Reykja­vík­ur­borg­ar.

Auglýsing

læk

Instagram