Garðfuglahelgi Fuglaverndar 2021

Hin árvissa Garðfuglahelgi Fuglaverndar verður haldin um næstu helgi 29. janúar – 1. febrúar 2021.

Þá eru fuglavinir hvattir til að skrá fugla sem líta við í garðinn í eina klukkustund og senda Fuglavernd talningartölurnar. Viðburðurinn stendur yfir frá og með föstudegi til mánudags og má velja þann dag sem best hentar á því tímabili. Nú er hart í ári hjá mörgum fuglum sem þreyja þorrann hérna með okkur og eru fuglavinir hvattir til að gauka að þeim fóðri og fersku vatni reglulega. Fyrir áhugasama býður Fuglavernd upp á streymisviðburð á Zoom á fimmtudaginn kl. 17 þar sem farið er yfir framkvæmd talningar og skráningar.

Finna má nánari upplýsingar um viðburðinn á Facebook síðu Fuglaverndar Fuglavernd og á vefsíðu Fuglaverndar Fuglavernd.is. Einnig má finna þar gagnlegar upplýsingar um garðfugla og fóðrun þeirra: fóðrun garðfugla.

Um Fuglavernd:

Fuglavernd eru frjáls félagasamtök sem vinna að verndun fugla og búsvæða þeirra. Fuglavernd telur um 1300 félagsmenn. Fuglavernd er aðili að alþjóðlegu fuglaverndarsamtökunum BirdLife International sem á félaga í 120 löndum.

Auglýsing

læk

Instagram