Heilsu- og líkamsræktarstöðvar opna á ný

Sóttvarnarlæknir hefur lagt til tilslakanir í aðgerðum stjórnvalda til að sporna gegn útbreiðslu Covid-19 hér á landi. Hann setur tillögur sínar þó fram með fyrirvara um að þróun faraldursins snúist ekki á verri veg. Að öllu óbreyttu munu nýjar breytingar taka gildi 13. janúar og gilda til 17. febrúar næstkomandi. Þetta kemur fram á vef Heilbrigðisráðuneytisins

Heilsu- og líkamsræktarstöðvum verður gert kleift að hefja starfsemi á ný en með ströngum skilyrðum. Þá verða fjöldatakmarkanir hækkaðar í 20 manns og íþróttastarf barna og fullorðinna verður heimilað að uppfylltum skilyrðum.

Helstu breytingar eru þessar:

  • Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns.
  • Verslanir: Gerð er sú breyting að í stað núgildandi reglu sem heimilar 5 viðskiptavini á hverja 10m² er gert ráð fyrir einum viðskiptavini á hverja 4m² en þó ekki fleiri en 100 viðskiptavinum í rými að hámarki.
  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar: Starfsemi verður heimil með ströngum skilyrðum. Fjöldi gesta má að hámarki vera helmingur þess sem kveðið er á um í starfsleyfi, eða helmingur þess sem búningsaðstaða gerir ráð fyrir ef gestafjölda er ekki getið í starfsleyfi. Einungis er leyfilegt að halda skipulagða hóptíma þar sem hámarksfjöldi í hverjum hópi eru 20 manns og gestir í hvern tíma skráðir. Búningsklefar skulu vera lokaðir. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sóttvarnalæknir mun setja fram ýtarlegar leiðbeiningar um sóttvarnir á heilsu- og líkamsræktarstöðvum.
  • Íþróttaæfingar: Íþróttaæfingar barna og fullorðinna verða heimilar með og án snertingar innan- og utandyra. Ekki mega vera fleiri en 50 manns í rými.
  • Íþróttakeppnir: Íþróttakeppnir barna og fullorðinna verða heimilar en án áhorfenda.
  • Skíðasvæði: Skíðasvæðum verður heimilt að hafa opið með takmörkunum samkvæmt reglu 4 í útgefnum reglum skíðasvæðanna í landinu. Í skíðalyftum skal tryggt að þeir sem eru einir á ferð þurfi ekki að deila lyftustól með öðrum, halda skal tveggja metra nálægðarmörk og sömu reglur gilda um grímunotkun og annars staðar.
  • Sviðslistir, bíósýningar og aðrir menningarviðburðir: Á sviði mega vera allt að 50 manns á æfingum og sýningum. Andlitsgrímur skulu notaðar eins og kostur er og tveggja metra nálægðartakmörkun virt eftir föngum. Sitjandi gestir í sal mega vera allt að 100 fullorðnir og 100 börn fædd 2005 og síðar. Gestir skulu sitja í sætum sem skráð eru á nafn og fullorðnir eiga að bera grímu.
Auglýsing

læk

Instagram