today-is-a-good-day

Jólalest Coca-Cola kemur í bæinn

Laugardaginn 12. desember mun hin árlega Jólalest Coca-Cola koma til byggða í 25. skipti. Lestin leggur af stað frá Stuðlahálsi kl. 17 með tilheyrandi ljósadýrð og jólatónum.

Jólalestin verður þó með breyttu sniði í ár vegna aðstæðna í samfélaginu. Til að koma í veg fyrir hópamyndun mun Lestin ekki stoppa á sínum hefðbundnu stoppistöðvum við Spöngina, Smáralind og Hörpu, heldur halda leið sinni viðstöðulaust áfram í gegnum Höfuðborgarsvæðið.

“Við biðlum til landsmanna að virða sóttvarnarreglur þegar við njótum þessarar ómissandi jólahefðar,“ segir í tilkynningu.

Auglýsing

læk

Instagram