LÁTUM OKKUR STREYMA – Ásgeir Trausti í kvöld

HLJÓMAHÖLL OG ROKKSAFN ÍSLANDS KYNNA:

LÁTUM OKKUR STREYMA

Fram koma Ásgeir, GDRN, Hjálmar, Moses Hightower, Dr. Gunni, Páll Óskar og Björgvin Halldórsson.

Hljómahöll og Rokksafn Íslands bjóða landsmönnum upp á ýmsa tónlistartengda viðburði í gegnum streymi á netinu á þessum óvissutímum. Þar sem að gestir komast ekki á tónleika í Hljómahöll og loka þarf Rokksafni Íslands þá geta gestir kíkt í rafræna heimsókn á tónlistartengda viðburði á næstu vikum. Þar á meðal má nefna beinar útsendingar frá tónleikum í Hljómahöll þar sem fram koma Ásgeir, Moses Hightower, GDRN og Hjálmar. Þá fær Rokksafn Íslands í heimsókn þá Pál Óskar og Björgvin Halldórsson sem munu leyfa áhorfendum að skyggnast á bakvið tjöldin við gerð sýninganna sem gerðar voru um þá á Rokksafni Íslands. Einnig verður boðið upp á að taka þátt í Popppunkt um popp- og rokksögu Íslands með Dr. Gunna í gegnum Kahoot í beinni á netinu.

Tónleikadagskrá í beinni útsendingu á Facebook-síðu Hljómahallar:

Ásgeir – 26. mars kl. 20:00
Moses Hightower – 2. apríl kl. 20:00
GDRN – 7. apríl – kl. 20:00
Hjálmar – 16. apríl – kl. 20:00

Popppunktur með Dr. Gunna:
27. mars kl. 14:00
3. apríl kl. 14:00

Auglýsing

læk

Instagram