LÍFIÐ ER NÚNA er skemmtiþáttur og vitundarvakning fyrir Kraft

LÍFIÐ ER NÚNA er skemmtiþáttur og vitundarvakning fyrir Kraft, stuðningsfélag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Þátturinn verður í beinni útsendingu og opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans kl.20 á fimmtudagskvöld.
Kynnar kvöldsins verða þau Sóli Hólm og Sóley Kristjánsdóttir en auk þeirra stíga á stokk fjölmörg af vinsælustu skemmtikröftum og tónlistarfólki landsins.
Einnig er hægt að styðja við átakið með því að kaupa „Lífið er núna“ húfuna sem er í sölu í verslunum Símans. Allur ágóði rennur beint í starfsemi Krafts.
Á hverju ári greinast 70 ungir einstaklingar með krabbamein. Það hefur ekki bara áhrif á þann sem greinist með krabbamein heldur fjölmarga í kringum hann þar á meðal maka, foreldra, börn, vini, vandamenn og jafnvel vinnufélaga. Að meðaltali má segja að um 7-10 nánir aðstandendur standi að baki hverjum einstakling svo það sýnir okkur að krabbamein hefur áhrif á marga.

Auglýsing

læk

Instagram