Ljósmyndir Nínu Richter innan úr stærsta hljóðfæri landsins

Innan í stærsta hljóðfæri landsins, Klais-orgeli Hallgrímskirkju, er töfraheimur með á sjötta þúsund pípum og tæknibúnaði úr málm og timbri, umfangsmiklum tölvubúnaði, ótal skápum og innri byggingu á fjórum hæðum, sem lítur út eins og vélbúnaður af öðrum heimi. Þessi hluti hljóðfærisins er og verður áfram lokaður almenningi, en þrátt fyrir það er yfirbyggingin, kirkjan sjálf ein fjölsóttasta bygging landsins og vafalaust ein sú mest ljósmyndaða, fyrir utan að vera helsta kennileiti höfuðborgarinnar.

Orgelið hefur 4 spilaborð og fótspil, 72 raddir og 5275 pípur. Orgelið er 15 metra hátt, vegur um 25 tonn og stærstu pípurnar eru um 10 metra háar.

Nína Richter reynir að nálgast orgelið frá nýrri hlið. Kirkjuorgelið hefur sérstöðu meðal hljóðfæranna en fáum hljóðfærum er ætlað jafn stórt hlutverk, að færa hlustendur nær því sem er af öðrum heimi. Í landi þar sem ríki og kirkja eru sameinuð í lagabókstaf öðlast þetta hundruð milljóna króna og stærsta hljóðfæri stærstu kirkju landsins sérstakan sess sem rödd hefðarinnar. Rödd sem hinn almenni hlustandi veltir sjaldnast fyrir sér – þetta er orgel og hlutverk þess er ekki fyrst og fremst að gleðja eða skemmta hlustendum, líkt og önnur hljóðfæri, heldur er merking tónanna pólitísk, trúarleg og hluti af yfirvaldinu. Til þess að hafa aðgang að hljóðfærinu er ekki endilega nóg að vera tónlistarmaður eða áhugasamur, heldur tilheyrir hljóðfærið umdeildri stofnun sem á snertifleti við líf nánast hvers einasta Íslendings.

Velkomin á ljósmyndasýninguna Organs of the Organ eftir Nínu Richter. Sýningin stendur opin aðeins eitt kvöld og opnar þann 2. ágúst klukkan 18:00 í safnaðarheimili Akureyrarkirkju við Eyrarlandsveg. Boðið verður upp á léttar veitingar, allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Organs of the Organ er afrakstur vinnustofu í Ljósmyndaskóla Sissu og verkið er unnið undir handleiðslu ljósmyndarans Spessa. Ljósmyndirnar eru teknar á tímabilinu október 2019 – júní 2020.

Nína Richter er fædd í Reykjavík árið 1986 og hefur komið víða við á fjölbreyttum ferli. Hún er menntuð í kvikmyndagerð og ljósmyndun og lærir í dag sagnfræði við Háskóla Íslands.

Auglýsing

læk

Instagram