Verslun H&M lokuð vegna kórónuveirusmits

Kórónuveirusmit hefur greinst í starfsmannahópi H&M verslunar í Kringlunni og hafa allir starfsmenn verslunarinnar hafa verið sendir í 7 daga sóttkví. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Kringlunnar

„Af þeim sökum verður verslunin lokuð amk þriðjudaginn 1.júní meðan unnið er að sótthreinsun verslunarinnar, “ segir í tilkynningunni.

„Í Kringlunni er áfram starfað skv sóttvarnarreglum og enn aukin áhersla á þrif og sótthreinsun snertiflata í ljósi þessara tíðinda.“

Auglýsing

læk

Instagram