Banana brauð sem þú verður að prófa – Sykur og hveitilaust!

Ef þú átt banana sem eru farnir að dökkna þá er tilvalið að nota þá í bananabrauð. Því dekkri sem bananinn er, þeim mun betra og sætara verður brauðið. Brauðið er langbest nýkomið úr ofninum með vel af smjöri og klárast yfirleitt hratt.

Hráefni:

3 dl hafrar malaðir í matvinnsluvél eða með töfrasprota

2 þroskaðir stappaðir bananar

2 egg

8 döðlur maukaðar í potti með örlitlu vatni

1 tsk kanill

1/2 tsk matarsódi

1/2 tsk lyftiduft

1/4 tsk salt

Aðferð:

Allt hráefnið er sett í skál og hrært vel saman með skeið eða sleif. Blöndunni er síðan hellt yfir í mót og inn í 180 gráðu heitann ofn í c.a. 30 mín.

Auglýsing

læk

Instagram