Forsætisráðherra Skotlands segir af sér – Mikil reiði í landinu eftir lög sem skerða málfrelsi til muna

BBC greinir frá því að Humza Yousaf, forsætisráðherra Skotlands, muni segja af sér síðar í dag.

Ráðherrann mætti í bústað sinn fyrir skömmu og hefur boðað til blaðamannafundar síðar í dag. Heimildamaður BBC segir að tilefnið sé afsögn ráðherrans en hún hefur legið í loftinu undanfarna daga.

Skoskir Græningjar slitu stjórnarstarfi og Yousaf hefur ekki tekist að tryggja starfandi minnihlutastjórn til að geta leitt landið áfram.

Til stóð að leggja fram tvær vantrausts tillögur á forsætisráðherrann í vikunni, eina á hann sjálfan og hina á ríkisstjórn hans.

Ástæðan fyrir afsögninni er sögð vera nýleg lög sem skoska stjórnin setti á þar sem málfrelsi borgara er skert til muna og refsing fyrir hatursorðræðu hert til muna, en fylgi ríkisstjórnarinnar hrundi í kjölfarið.

Fréttin verður uppfærð.

UPPFÆRSLA:

Humza Yousaf hefur nú sagt af sér sem forsætisráðherra Skotlands.  Hann óskar eftirmanni sínum farsældar í starfi.

 

Auglýsing

læk

Instagram