Heimsfrægur sálfræðingur vísar í mál íslensku stúlknanna sem blekktar voru upp í bíl með eldri mönnum og segist hafa varað við þróuninni

Sálfræðingurinn heimsþekkti, Gad Saad, hefur vakið athygli á íslensku sakamáli þar sem þrír menn af arabískum uppruna eru sagðir hafa lokkað barnungar stúlkur upp í bíl með blekkingum og prettum. Lögregla stöðvaði bílinn og kom stúlkunum til aðstoðar áður en frekari skaði hlaust af.

Málið hefur verið til umfjöllunar hjá íslenskum miðlum og hefur móðir annarrar stúlkunnar greint frá atvikinu opinberlega. Þar kemur fram að stúlkurnar hafi verið blekktar upp í bíl og að aðstæður hafi verið hættulegar áður en lögregla greip inn í.

Auglýsing

Spyr hver hafi varað við þessu

Í færslu á samfélagsmiðlum vísar Saad til málsins og spyr hvort einhver geti bent á þann sem hafi varað Íslendinga við slíkri þróun árið 2025. Hann heimsótti Ísland það ár og hélt fyrirlestur í Hörpu þar sem hann fjallaði meðal annars um slíkar hættur.

Segir aðferðafræðina minna á þekkt mynstur

Saad hefur áður bent á að ákveðin mynstur í kynferðisbrotamálum erlendis byggi á því að ungar stúlkur séu lokkaðar með blekkingum, trausti þeirra náð, þeim gefin eiturlyf og áfengi og þær síðan settar misnotaðar, oft á hrottafenginn hátt.

Aðferðafræðin sem lýst er í íslenska málinu hefur verið sögð minna um margt á slíkar aðferðir, þar á meðal þær sem hafa verið notaðar af pakistönskum nauðgunargengjum í Bretlandi.

Pakistanskir glæpahópar herjuðu á ungar hvítar stúlkur í Englandi – Yfirvöld vernduðu gerendur

Lögregla greip inn í tæka tíð

Samkvæmt þeim upplýsingum sem liggja fyrir stöðvaði lögregla bílinn áður en málið þróaðist frekar og tryggði öryggi stúlknanna. Ekki hefur verið greint frá frekari framvindu rannsóknar málsins að svo stöddu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing