Kveikti í sér fyrir utan réttarhöldin yfir Trump og er nú látinn

Hinn 37 ára Maxwell Azzarello hellti yfir sig óþekktum vökva og kveikti svo í sér fyrir utan dómshúsið í New York. Áður en hann gerði það dreifði hann bæklingum sem BBC fréttastofan lýsir sem samansafni af samsæriskenningum.

Hann var færður á sjúkrahús í alvarlegu ástandi en lést degi síðar. Donald Trump var inni í dómshúsinu þar sem réttarhöld yfir honum standa nú yfir.

Lögreglustjóri New York sagði að bæklingarnir hefðu verið samsæriskenningar en í þeim var meðal annars að finna texta þar sem Donald Trump og Joe Biden voru sagðir vera saman í liði gegn fólkinu í landinu.

Auglýsing

læk

Instagram