Auglýsing

Lækna-Tómas með illkynja krabbamein í ristli: „Fyrir vikið verð ég áfram í veikindaleyfi næstu mánuði.“

Tómas Guðbjartsson, hjartalæknir á Landspítalanum, greindi frá því nú síðdegis í dag á Facebook-síðu sinni að hann væri með illkynja krabbamein. Tómas hefur verið í veikindaleyfi frá Landspítalanum síðan í byrjun árs en margir töldu það vegna „plastbarkamálsins“ svokallaða. Veikindaleyfið er hins vegar vegna þess að frá áramótum hefur hann undirgengist rannsóknir vegna æxlis í ristli.

„Eins og kom fram í yfirlýsingu minni á Facebook 8. janúar sl. hef ég undanfarnar vikur verið í veikindaleyfi frá Landspítala,“ segir Tómas í færslunni á Facebook og greinir þar einnig frá niðurstöðum rannsókna og aðgerð sem ekki gekk eins og vonast var til.

„Frá áramótum hef ég jafnframt verið í rannsóknum vegna æxlis í ristli sem við frekari rannsóknir reyndist illkynja,“ segir Tómas. „Því miður tókst ekki að fjarlægja það með minni aðgerð og mun ég því þurfa að gangast undir stærri skurðaðgerð bráðlega. Fyrir vikið verð ég áfram í veikindaleyfi næstu mánuði.“

Tómas þakkar að lokum fyrir veittan stuðning á síðustu vikum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing