Mál íslensku stúlknanna sem menn af arabískum uppruna plötuðu inn í bíl, vekur enn meiri alþjóðlega athygli

Mikil umræða hefur skapast á samfélagsmiðlinum X eftir að fréttir bárust af máli þar sem þrír menn af arabískum uppruna voru handteknir á Íslandi grunaðir um að hafa táldregið tvær fjórtán ára stúlkur. Fjölmargir stórir áhrifavaldar og síður með hundruð þúsunda og jafnvel milljónir fylgjenda hafa deilt fréttaflutningi af málinu.

Vísa í „grooming gangs

Meðal þeirra sem hafa fjallað um málið er miðillinn Visegrád 24, sem er með um 1,7 milljónir fylgjenda. Þar er því haldið fram að mennirnir hafi verið handteknir eftir að lögregla fann tvær fjórtán ára stúlkur undir áhrifum í bíl þeirra í Reykjavík.

Auglýsing

Í færslunum er því einnig haldið fram að mennirnir séu grunaðir um að hafa tælt stúlkurnar í gegnum samfélagsmiðla, svokallað „grooming“. Aðrir áhrifavaldar hafa gengið enn lengra í umfjöllun sinni. Breski aðgerðarsinninn Tommy Robinson, sem er með um tvær milljónir fylgjenda hefur deilt fréttinni og lætur harðorða færslu fylgja með.

Sömuleiðis segir notandinn Basil the Great, með um 350 þúsund fylgjendur, að þrátt fyrir lítinn fjölda múslima á Íslandi séu þeir „þegar byrjaðir að herja á ungar stúlkur“. Í sumum færslum er jafnvel talað um nauðgunargengi í tengslum við málið.

Íslenska fréttin

Þarna er verið að vísa í nýlega frétt þar sem lögregla stöðvaði bíl í Reykjavík, en í honum voru þrír fullorðnir menn og tvær fjórtán ára stúlkur. Stúlkurnar voru sagðar undir áhrifum og mennirnir grunaðir um að hafa tælt þær í gegnum samfélagsmiðla.

Eins og greint hefur verið frá hefur móðir annarrar stúlkunnar stigið fram og lýst atvikinu sem afar ógnvekjandi. Hún leggur áherslu á að ábyrgðin liggi hjá fullorðnu aðilunum og hvetur foreldra til að vera vakandi fyrir hættum sem geta leynst á netinu.

Móðir annarrar stúlkunnar sem var plötuð upp í bíl af mönnum af arabískum uppruna stígur fram

Rannsókn málsins stendur yfir.

Hægt er að sjá nokkrar af færslunum hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing