Boðað hefur verið til mótmælagöngu fyrir utan höfuðstöðvar Ríkisútvarpsins þann 30. apríl næstkomandi klukkan 14:00.
Gangan, sem hefst við Efstaleiti, er skipulögð af Magna Ara Magnasyni og markmið hennar er að vekja athygli á því sem skipuleggjendur telja einhliða og pólitískt litaða umfjöllun hjá RÚV.
Í yfirlýsingu skipuleggjenda segir að almenningur hafi lengi þurft að hlýða á fréttir sem endurspegli erlendan áróður, án þess að fá raunhæfa mynd af alþjóðlegum málefnum.
Sérstaklega er gagnrýnt að RÚV fjalli ekki um spillingarmál í Bandaríkjunum og vopnasölu til Úkraínu, auk þess sem fólk sé neytt til að greiða fyrir þjónustuna í gegnum skatta.
„Nú er tími til kominn að við látum rödd okkar heyrast,“ segir í tilkynningu. „Við ætlum að koma saman friðsamlega og krefjast þess að ríkisfjölmiðillinn axli ábyrgð og sinni hlutverki sínu af heilindum.“
Viðburðurinn er opin öllum og fer fram við Efstaleiti 1, aðsetur RÚV.