Rafmagnsleysi í Suður Evrópu sýnir mikilvægi þess að vera með reiðufé – Íslensk fjölskylda föst í rafmagnsleysi

Í Facebook hópnum Notum reiðufé sem er lögeyrir, segir íslenskur maður frá því bjargarleysi sem fylgir því að vera ekki með reiðufé þegar kerfin hrynja.

Björn Birgisson, sem var staddur á Ibiza ásamt fjölskyldu sinni, lýsir ótrúlegu ástandi sem skapaðist eftir umfangsmikið rafmagnsleysi á Spáni og Portúgal.

Auglýsing

Hann segir að aldrei hafi hann fundið jafn sterkt fyrir mikilvægi þess að hafa reiðufé á sér.

Algert hrun þjónustu án rafmagns

Þegar fjölskyldan lenti á Ibiza varð strax ljóst að eitthvað var í ólagi.

Þrátt fyrir litlar upplýsingar kom fljótlega í ljós að ekkert rafmagn væri í boði og þar með talin öll kerfi sem taka við greiðslukortum.

Í leigubílaröðinni höfðu allir bílstjórar sömu sögu að segja: ef þau væru ekki með reiðufé væri enginn bíll að fara að taka þau upp í.

Neyðarástand í almenningssamgöngum

Þegar fjölskyldan reyndi að komast með strætó mættu þeim ljót sjón að sögn Björns.

Þýskir ferðamenn voru í uppnámi, sumir grétu á meðan aðrir rifu kjaft við strætóbílstjórann sem vildi ekki hleypa neinum upp í nema þau væru með reiðufé.

Þá kom í ljós að engin kortaviðskipti voru möguleg í allri borginni, hvorki til samgangna né til kaupa á vatni eða mat.

Sluppu naumlega úr aðstæðum

Á endanum tókst hópnum að komast í strætó, en eingöngu þar sem nokkrir Þjóðverjar gripu til örþrifaráða og opnuðu hliðið að vagninum með handafli.

Með því var fjölskyldunni og öðrum gert kleift að komast frá flugvellinum þar sem við tóku aðrar áskoranir í rafmagnsleysinu.

Björn segir að á þessum augnablikum hafi hann skynjað hversu algerlega háður hann var rafrænu kerfunum, og mikilvægi þess að bera alltaf með sér reiðufé.

Fyrir neðan er hægt að sjá skjáskot af færslunni.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing