Auglýsing

Sex gista fangageymslur lögreglu: Hvað gerðist í þínu hverfi í nótt?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast frá klukkan 17:00 í gær og þar til 05:00 í morgun en nokkuð var um tilkynningar um aðila í annarlegu ástandi sökum áfengis eða annarra vímugjafa.

Sex aðilar gista fangageymslur lögreglu núna í morgunsárið en þar á meðal er aðili sem sýndi fram á ógnandi hegðun í garð starfsmanna á matsölustað í hverfi 101. Stuttu seinna barst tilkynning um aðila að veitast að leigubifreið með höggum og spörkum. Skemmdi sá rúðu í leigubifreiðinni. Reyndist þetta var sami aðilinn og var handtekinn og vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

 Lögreglustöð 1 – Austurbær- Miðbær-Vesturbær-Seljarnarnes:

 Tilkynnt um aðila í annarlegu ástandi á bar í hverfi 101. Reynt var að fá upp úr aðilanum hvar hann ætti heima svo hægt væri að aka honum heim til sín, ekki gekk það. Aðilinn vistaður í fangaklefa að sökum ástands þar sem hann var ekki að valda sér.

Tilkynnt um þjófnað á rafmagnshlaupahjóli í hverfi 105. Meintur gerandi handtekinn stuttu seinna.

Tilkynnt um æstan aðila í apóteki. Aðilinn farinn þegar lögreglu bar að.

Tilkynnt um slagsmál í hverfi 101.

Ökumaður bifreiðar handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Tilkynnt var með um aðila sem var að sýna fram á ógnandi hegðun í garð starfsmanna á matsölustað í hverfi 101. Stuttu seinna barst önnur tilkynning um aðila að veitast að leigubifreið með höggum og spörkum. Skemmdi aðilinn rúðu í leigubifreiðinni. Reyndist þetta vera sami aðilinn sem var handtekinn og vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

Lögreglustöð 2 – Hafnarfjörður- Garðabær- Álftanes:

 3 ökumenn handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Lögreglustöð 3 – Kópavogur- Breiðholt:

Tilkynnt um innbrot í heimahús í hverfi 109. Málið í rannsókn.

Lögreglustöð 4 – Grafarvogur- Mosfellsbær- Árbær:

 Tilkynnt um aðila vera að stela úr matvöruverslun í hverfi 113. Vettvangsskýrsla rituð.

Ökumaður bifreiðar handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis. Aðilinn var laus úr haldi lögreglu að blóðsýnatöku lokinni. Aðilinn lét svo öllum illum látum fyrir utan lögreglustöðina og sparkaði í hurðar og öskraði hástöfum. Var honum gefin ítrekuð fyrirmæli um að yfirgefa varðsvæði lögreglu sem hann gerði ekki. Aðilinn vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing