Sigurður Ingi: „Stærsta smjörklípa sögunnar“

Sigurður Ingi Jóhannsson þingmaður og fráfarandi formaður Framsóknarflokksins ber saman ESB-kosningu ríkisstjórnar Kristrúnar við aðferð Trump Bandaríkjaforseta að hliðra sér við óþægilegum vandamálum heima fyrir með því að beina athyglinni til útlanda. Sigurður Ingi skrifar á Facebook:

„Í Bandaríkjunum ræðst forsetinn inn í hvert landið á fætur öðrum til að forðast Epstein- skjölin og annan vandræðagang innanlands! Á Íslandi ákveður ríkisstjórnin að kljúfa þjóðina og setja ESB umsókn á dagskrá til að forðast umræðu um þá staðreynd að verðbólgan er að festast í yfir 5%. Atvinnuleysi er komið yfir 5% og hagvöxtur minnkar!“

Auglýsing

Sigurður Ingi vekur athygli á fréttaljósmynd af blaðamannafundi leiðtoga ríkisstjórnarflokkanna. Þær Kristrún og Þorgerður Katrín horfast brosandi í augu en Inga Sæland starir með óblíðum svip út í fundarsalinn. Sigurður Ingi segir:

„Þessi mynd segir meira en mörg orð. Myndin er fengin að láni frá RÚV og er frá blaðamannafundinum um þjóðaratkvæða þingsályktun ríkisstjórnarinnar um að hefja að nýju aðildarviðræður við ESB. Evrópu stallsysturnar horfa hvor til annarrar til að efla sjálfstraustið – sú þriðja starir út í tómið.“

Lokaorð fráfarandi formanns Framsóknarflokksins eru þessi:

„Engin sleggja! Ekkert plan! Engin viðbrögð við varanlegri dýrtíð fyrir tekjulægri heimili!
Bara stærsta smjörklípa aldarinnar!!!“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing