Starfsmenn Frontier Airlines látnir fara eftir ófagmannleg samskipti við farþega – „Og þú hélt að þú kæmist í flugið“

Tveir starfsmenn sem unnu við innritunarborð Frontier Airlines hafa verið látnir fara eftir að myndband fór í dreifingu á netinu þar sem þeir sjást hæðast að farþega sem reyndi að skrá sig í flug.

Atvikið átti sér stað síðastliðinn föstudag á flugvelli í Norður-Karólínu, þar sem farþegi hugðist skrá sig í flug til Boston.

Auglýsing

Myndband sýnir að samskiptin urðu strax stirð þegar farþeganum var tjáð að hann þyrfti að greiða 25 dollara gjald fyrir að skrá sig inn í eigin persónu.

Farþeginn brást við gjaldinu með undrun og var ekki hrifinn af fyrirkomulaginu.

Ótrúleg atburðarás

Í kjölfarið hófu starfsmenn Frontier að rífast við hann, neituðu að skrá hann inn og gerðu grín að honum með því að endurtaka setninguna: „Og þú hélt að þú kæmist í flugið.“

Báðir aðilar tóku upp myndband af atvikinu, sem síðan fór í dreifingu á samfélagsmiðlum og vakti mikla athygli.

Í yfirlýsingu til TMZ segir Frontier Airlines: „Við erum meðvituð um það sem gerðist og höfum haft bein samskipti við farþegann. Viðkomandi starfsmenn, sem voru á vegum utanaðkomandi verktaka, eru ekki lengur hluti af Frontier teyminu.“

Flugfélagið greinir jafnframt frá því að það hafi endurgreitt upprunalegt flug farþegans og bætt honum kostnað við annað flug sem hann bókaði til að komast heim.

Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing